SAGA Traffic sérhæfir sig í rannsóknum og þróun á umferðatengdri upplýsingamiðlun. Fyrirtækið aflar gagna frá umferðarmannvirkjum og ökutækjum, greinir og miðlar til þeirra aðila sem geta nýtt upplýsingar í hagnýtum tilgangi t.d við stjórnun og ákvörðunartöku í samgöngum.

Meðal annars mun SAGA Traffic rannsaka umferðartafir á álagstíma , l eggja mat á mismunandi ráðstafanir til að draga úr umferðartöfum og leita leiða til að nýta umferðarmannvirki betur. Umferðarþróun og umferðarstjórnun verður m.a skoðuð í ljósi þeirrar þróunar sem er að verða erlendis með nýjum reglum og tækni.

Fyrirtækið er í eigu SAGAsystem ehf. og Almennu verkfræðistofunnar hf. Almenna verkfræðistofan hefur áratuga reynslu af hönnun og stjórnun í verkefnum er snúa að samgöngum . Sagasystem sérhæfir sig í þróun á rafeindabúnaði og upplýsingatæknilausnum sem byggja á GPS tækni við akstursmælingar.

SAGA Traffic stefnir að því að verða leiðandi á Íslandi í umferðatengdri upplýsingamiðlun, vinna verkefni bæði fyrir opinbera aðila og einkaaðila. SAGA Traffic stefnir að þátttöku í erlendum rannsóknum og útflutning i á íslensku hugviti.

 





SAGA Traffic - Fellsmúla 26 - 108 Reykjavík - Sími: 858 0156 - sagatraffic@sagatraffic.is